Hvernig getum við hjálpað?

Þjónusta

Vefverslun

Vefverslun er á mikilli uppleið og nú hefur aldrei verið jafn auðvelt að koma þínum vörum betur á framfæri.

Reynslan hefur sýnt okkur að kröfur og aðstæður viðskiptavina geta verið ótrúlega mismunandi. Við hjá Jósefsson erum stolt af því að bjóða upp á tvær frábærar en mismunandi netverslunarlausnir sem ættu að þjóna þörfum allra, MyShop og WooCommerce.

Til að þú áttir þig á því hvor leiðin henti þinni starfsemi betur höfum við útlistað hér að neðan helstu eiginleika kerfanna.

WooCommerce

WooCommerce er eitt stærsta vefverslunarkerfi heims og því eru möguleikarnir nánast endalausir.

Við vinnum síðuna eftir þínum óskum og niðurstaðan verður einstök og fáguð netverslun sem sinnir öllum þínum þörfum. Eftir að verkið er tilbúið kennum við þér á kerfið og svo heldur þú af stað í þitt ferðalag.

Ef eitthver vandamál skyldu koma upp í framtíðinni getur þú alltaf leitað til okkar og við hjálpum þér að finna lausn gegn vægu þjónustugjaldi.

Kerfið aðlagar sig að hvaða skjástærðum og snjalltækjum sem er og kemur einnig með appi sem virkar á bæði Apple & Android.

Vefsíður

Við bjóðum upp á sérsniðnar veflausnir þar sem mismunandi þarfir viðskiptavina koma saman við stílhreina hönnun og þægilegt notendaviðmót. Náið samstarf í gegnum allt ferlið tryggir að áherslur og markmið viðskiptavinar komist skýrt á framfæri. Það mikilvægasta er að afraksturinn skili viðskiptavinum okkar árangri.

Við okkar heimasíðugerð notum við WordPress og það er ástæða fyrir því. WordPress er vinsælasta og stærsta vefumsjónarkerfi í heiminum í dag. Einfalt og notendavænt og lagar sig að skjástærðum, spjaldtölvum og snjallsímum. Kerfið er í stöðugri þróun, með reglulegum öryggisuppfærslum og hægt að stilla stjórnborðið á Íslensku.

WordPress

  • Er í stöðugri þróun
  • Hár öryggisstuðull
  • Reglulegar öryggisuppfærslur
  • Hefur fulla stjórn á vefnum
  • Hægt að stilla á íslenskuleitarvélavænt (seo)
  • Fjöldi auka veflausna
  • Lagar sig að mismunandi skjástærðum
  • Hentar litlum og stórum fyrirtækjum
  • Endalausir möguleikar

Leitarvélabestun / SEO

Leitarvélar eru orðnar risa stór partur af lífi okkar og mikilvæg uppspretta þekkingar. Það kemur því ekki á óvart að þær niðurstöður sem koma efst á leitarvélum eru þær mest skoðuðu. Með leitarvélabestun hjálpum við þér að auka umferðina inn á þína síðu og þar með viðskiptin.

Leitarvélar vinna eftir ákveðnum algrímum þar sem gæði síðunnar skiptir máli. Þessi atriði eru fjölmörg en ef nokkur má nefna skipta skýrir textar, hraðvirkni og öryggi síðu miklu máli. Við yfirförum síðuna þína og breytum síðan því sem betur má fara. Næsta skref er að fara yfir með viðskiptavinum okkar hvaða leitarorð eiga best við og þannig komum við þér á toppinn.

Tengingar

Þegar kemur að tengingum þá segjum við: Það er allt hægt! Ef við þekkjum það ekki sjálfir þá leitum við til annarra sérfræðinga sem geta leyst það með okkur.

Tenging sem við höfum nú þegar gert er milli bókhaldskerfisins Dk og netverslunarkerfisins WooCommerce. Þetta eru kerfi sem bæði er með þeim stærstu á sínu sviði og hefur tengingin gefið góða raun hjá þeim viðskiptavinum okkar sem hana eru að nýta sér.

Við erum klárir í að skoða allar mögulegar lausnir á þínum vandamálum svo að allt gangi smurt fyrir sig.

Tæknileg aðstoð

Skýjaþjónusta og hugbúnaður

Jósefsson sér sínum viðskiptavinum fyrir skýjaþjónustu þar sem öll gögn er vistuð á sama stað sem stuðlar að betra aðgengi og auknu öryggi gagna. Einnig auðveldar það flæðið á samvinnu milli samstarfsfólks sem og við viðskiptavini.

Leiðandi lausnir á markaðnum eru frá Microsoft (Office 365) annars vegar og Google (G-Suite) hins vegar. Báðar þjónustur bjóða upp á tölvupóst í vafra eða forritum fyrir snjalltæki frá bæði iOS og Android.

Hvora leiðina þú vilt fara fer eftir þörfum hvers fyrirtækis og þar getum við hjálpað.

Afritun gagna og vírusvarnir

Láttu okkur um að halda þínum gögnum öruggum og hættu að hafa áhyggjur af því að harði diskurinn hrynji. Við höldum utan um afritun á öllum gögnum og með vaktaðri vírusvörn komum við í veg fyrir óboðna gesti. 

Þjónusta í áskrift​

Tækninni fer sífellt fram og nú hefur Jósefsson hannað þjónustupakka fyrir fyrirtæki þar sem að við sjáum til þess að þitt fyrirtæki sé alltaf með nýjustu uppfærslurnar. Kynntu þér hvaða leið hentar þér best og við gefum þér tilboð.

Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.